Ef spyrjandi á við þennan venjulega hvíta sykur sem við kaupum í næstu verslun og notum í matargerð og bakstri þá er hann tvísykra sem kallast súkrósi. Sykrur eru lífræn efni sem einnig kallast kolvetni. Þeim er gjarnan skipt í einsykrur, tvísykrur og fjölsykrur eftir því úr hversu mörgum einingum sykran er gerð. Um sykrur má lesa í svari eftir Þuríði Þorbjarnardóttur við spurningunni: Hvað eru sykrur?
Súkrósi eða sykur er aðallega framleiddur úr sykurrófum og sykurreyr. Bragðið af súkrósanum...
↧