Ingibjörg Harðardóttir er prófessor í lífefna- og sameindalíffræði við Læknadeild Háskóla Íslands. Ingibjörg hefur fyrst og fremst rannsakað bólgu og þá sérstaklega hjöðnun hennar, með hvaða hætti hún á sér stað og hvernig er mögulegt að ýta undir hjöðnun bólgu með fæðu eða náttúruefnum. Bólga er mikilvægt svar líkamans við áreiti, svo sem í vörnum líkamans gegn sýkingum og ýmsum frumuskemmdum. Eftir að bólga hefur náð hámarki er mjög mikilvægt að hún hjaðni því annars er hætt við að hún verði v...
↧