Helga Kress er prófessor emeritus í bókmenntafræði við hugvísindadeild Háskóla Íslands. Rannsóknasvið hennar er íslensk bókmenntasaga og íslensk bókmenntahefð að fornu og nýju frá kvenna- og kynjafræðilegu sjónarhorni. Hún er brautryðjandi í femínískum bókmenntarannsóknum hér á landi og einn af okkar mikilvirkustu og áhrifamestu bókmenntafræðingum.
Af rannsóknaefnum Helgu má nefna sögu íslenskra kvennabókmennta frá upphafi, með áherslu á fyrstu íslensku kvenrithöfundana, ósýnileika þeirra og...
↧