Upphaflega hljóðaði spurningin svona:
Ég er mjög forvitinn að vita hvers konar stjörnukíki
þið eruð með undir kúplinum sem sést frá Suðurgötunni? Takk, Gabriel... Áhugamaður um stjörnuskoðun
Undir hvolfþaki á Árnagarði er hýstur lítill stjörnusjónauki í eigu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands. Sjónaukinn og hvolfþakið voru sett upp í október árið 1995 og var aðstaðan hugsuð fyrir nemendur í stjörnufræði við Háskóla Íslands. Hvolfþakið hafði verið keypt tuttugu árum fyrr eða á sama tíma ...
↧