Orðasambandið mála bæinn rauðan merkir að ‘skemmta sér ærlega, sleppa fram af sér beislinu’. Það er ekki gamalt í málinu. Í Morgunblaðinu frá desember 1962 er þetta dæmi:
því eins og við sæjum stæði til að fara út og „mála bæinn“.
Að vísu vantar lýsingarorðið rauður en vel má hugsa sér að það hafi verið undanskilið og mála bæinn er haft í gæsalöppum eins og oft var gert áður fyrr þegar meðvitað var að verið væri að sletta. Í Þjóðviljanum frá júní 1972 er elsta dæmið sem ég fann á Timarit.i...
↧