Indriði er eina nafnið sem mér er kunnugt um sem ritað er nú með þremur i-um. Önnur þríkvæð nöfn með sama sérhljóði finnast í nafnaforðanum, eins og til dæmis Aðalbrandur með þremur a-um, en þau eru fremur fá.
Nafnið Indriði þekkist þegar í fornu máli ritað Eindriði eða Eindriðr. Í formála Snorra-Eddu er sonarsonur Þórs (Trórs) nefndur Einriði. Í fornum skáldskap er Þór sjálfur nefndur Eindriði. Í norsku hefur nafnið verið notað í ýmsum myndum allt frá um 1300, E(i)ndride, E(i)nride, Indride,...
↧