Halldór G. Svavarsson er dósent við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Rannsóknaviðfangsefni hans hafa spannað vítt svið, frá steinsteypu og keramíks til smáþörunga og örtækni. Undanfarinn áratug hefur meginviðfangsefni hans verið þróun nýrra kynslóða sólarsella og ljósnema sem byggir á því að móta efnisbyggingu þeirra á nanóskala, til dæmis í örgranna nanóvíra. Einnig hefur Halldór unnið að nýstárlegum aðferðum til að prenta örsmæðarmynstur á kísilflögur með því að nýta víxlhrif í ...
↧