Í heild hljóðaði spurningin svona:Hversu fast geta tígrisdýr bitið og hversu erfitt er að vernda sig gegn þeim ef maður lendir í einu slíku?
Bitkraftur stórra rándýra eins og tígrisdýra (Panthera tigris) er mjög mikill og getur auðveldlega molað handlegg á manneskju. Bitkraftur er mælanlegur sem þrýstingur á flatamálseiningu og hefur verið mældur hjá mörgum dýrategundum, svo sem kattardýrum, hunddýrum, hákörlum og krókódílum. Niðurstöður sýna að líklega hafi saltvatns-krókódílar mesta bitkraf...
↧