Hér er fyrri hluta lengri spurningar frá Úlfari svarað. Þetta er fyrsta svarið af þremur um kosningakerfið. Spurningin öll hljóðaði svona:
Hvernig virkar kosningakerfið á Íslandi, hvað þurfa flokkar mikla kosningu til að koma manni á þing o.s.frv.?
Lykilatriðin í fyrirkomulagi kosninga til Alþingis eru þessi:
Þingmenn eru 63. Þessi tala hefur verið óbreytt frá því í kosningunum 1987.
Landinu er skipt upp í sex kjördæmi og í hverju þeirra eru kosnir 8 til 13 þingmenn. Fámennustu ...
↧