Upprunalega spurningin hljóðaði svo:Ég er að reyna að komast að þýðingu og útskýringu á íslenska orðinu ‘ekta’. Getið þið aðstoðað mig með uppruna, merkingu og fleira á þessu orði?
Vísast er verið að spyrja um lýsingarorðið ekta í merkingunni ‘ósvikinn, upprunalegur’. Það er óbeygjanlegt, eins í öllum föllum og kynjum, og þekkist í málinu að minnsta kosti frá 18. öld. Það er þegar í orðabókarhandriti Jóns Ólafssonar úr Grunnavík, ritara Árna Magnússonar handritasafnara, sem skrifað var á árun...
↧