Það eru til yfir 40.000 tegundir köngulóa í heiminum. Mönnum stendur þó ógn af fæstum þeirra. Flestar köngulær sem á annað borð eru eitraðar eru það litlar að þær ná ekki að valda meiru en minni háttar óþægindum ef þær bíta menn. Þær sem þó eru nógu stórar og búa yfir nægilega öflugu eitri til að skaða fólk, jafnvel draga það til dauða, forða sér gjarnan frekar frá ógn ef mögulegt er en bíta aðeins í sjálfvörn sé þeim verulega ógnað. Á því eru þó vissulega undantekningar og tegundir misárásagja...
↧