Ómögulegt er að svara þessari spurningu með annað hvort jái eða nei-i. Slæðan sem sumar múslímakonur bera getur táknað ýmislegt. Með henni geta konur til að mynda verið að tjá menningu sína og sögu, afstöðu til trúarbragða og annarra skoðana. Slæðan getur einnig verið birtingarmynd kúgunar feðraveldis og stjórnvalda.
Slæður múslímskra kvenna eru fernskonar: níkab, tjador, búrka og híjab. Í ensku eru notuð orðin: niqab, chador, burka og hijab. Hægt er að lesa meira um muninn á þeim í svari eft...
↧