Kafbátur er bátur sem er hannaður til að sigla í kafi. Sá fyrsti sem vitað er að hafi hannað kafbát var breski stærðfræðingurinn William Bourne (um 1535-1582). Hugmynd hans var að byggja lokaðan bát úr tré og vatnsheldu leðri sem væri hægt að róa í kafi. Báturinn átti að fara í kaf þegar rúmmál hans væri minnkað með því að draga inn hliðarnar. Bourne birti lýsingu á hugmynd sinni auk teikninga árið 1578 en smíðaði ekki slíkan bát.
William Bourne birti þessa teikningu af kafbáti árið 1578. Kaf...
↧