Hér er einnig hægt að finna svar við spurningunum:
Hvernig er stafrófið á blindraletri?
Er til íslenskt braille-blindraletur? Ef svo er hvernig lítur það þá út?
Frakkinn Louis Braille (1809-1852) fann upp blindraletrið eða punktaletrið, kerfi sem gerir blindum og sjónskertum kleift að lesa og skrifa. Kerfið er þekkt um allan heim. Á erlendum málum er það nefnt braille.
Louis Braille fæddist 4. janúar árið 1809 í litlum bæ nálægt París sem heitir Coupvray. Faðir hans var söðlasmiður og þó...
↧