Kók er íslenska heitið á gosdrykknum Coca-Cola™ en er að einhverju leyti notað um kóladrykki almennt, óháð því hvert vörumerkið er. Orðið er sprottið af fyrri hluta erlenda vörumerkisins sem hefur verið lagað að íslenskum framburði og stafsetningu. Það er einnig til marks um aðlögun orðsins að íslensku málkerfi að það beygist í samræmi við samhengið sem það birtist í og tengist auðveldlega við aðra orðstofna í samsettum orðum eins og kókflaska, kókskilti, kókverksmiðja og fleiri.
Kyn orðsins ...
↧