Í Íslendingasögu sem hefur verið kennd við föður Leifs og kölluð Eiríks saga rauða er sagt frá því að Leifur hafi verið í Noregi hjá Ólafi konungi Tryggvasyni og konungur sent hann til Grænlands til að boða landsmönnum kristni. Leifur lætur í haf og er lengi úti og hitti á lönd þau er hann vissi áður enga von til. Voru þar hveitiakrar sjálfsánir og vínviður vaxinn. … Leifur fann menn á skipflaki og flutti heim með sér. Sýndi hann í því hina mestu stórmennsku og drengskap, sem mörgu öðru, er hann...
↧