Landnám norrænna manna hófst á Íslandi 874. Um það leyti sem landið var að verða fullnumið var landnámsmaður að nafni Úlfljótur sendur til Noregs til að kynna sér lög. Átti hann að setja saman lög fyrir Ísland því menn sáu þörf á að ein lög giltu í landinu. Hann var þrjá vetur í Noregi og kom til baka með lögin um 921. Lögin voru formlega sett árið 930 og þar með var Alþingi stofnað og þjóðveldinu komið á. Þessi fyrstu lög þjóðveldisins voru nefnd Úlfljótslög. Lögin voru færð í letur veturinn 11...
↧