Einnig var spurt:Hvaðan kemur nafnið Grágás og hvað þýðir það?
Nafnið Grágás er haft um elstu lögbók Íslendinga, þá sem var í gildi á þjóðveldistímanum og nokkur ár fram yfir hann en gekk úr gildi þegar hér var lögtekin bók sem hefur (af óþekktri ástæðu) fengið nafnið Járnsíða. Það gerðist á árunum 1271–73. Engin leið er að ákvarða hvenær Grágás gekk í gildi. Samkvæmt Íslendingabók Ara fróða settu Íslendingar sér fyrst lög nálægt lokum landnámsaldar, um 930, en þau eru aldrei kölluð Grágás, fre...
↧