Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Hver er þýðingin á "bioengineering" á íslensku? Er þessi fræðigrein iðkuð hér á landi?
Lífverkfræði (e. bioengineering) er fræðigrein sem samþættir líffræði og verkfræði við lausn ýmissa vandamála sem við stöndum frammi fyrir í dag. Hefðbundnu verkfræðigreinarnar byggja á stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði við greiningu og hönnun tæknilausna en lífverkfræðin byggir að stórum hluta á lífvísindum og nýtir verkfræðilega aðferðafræði. Markmið þessarar nýj...
↧